Efahyggja er almennt hugtak sem nær yfir hugmyndir um að ekki sé hægt að öðlast þekkingu á tilteknum hlutum eða þáttum. Oft takmarkast efahyggjan við einhverja tiltekna hluti eða þætti mannlegs lífs. Til dæmis er talað um trúarlega efahyggju þegar efast er um að hægt sé að vita að Guð sé til. En efahyggja getur lí...
Sú sífellda hraðaaukning sem átt hefur sér stað í tölvum á síðustu áratugum gæti fengið okkur til að trúa því að hægt sé að auka hraða tölva endalaust. Þetta er þó líklega ekki tilfellið, því miðað við þá örgjörvahönnun sem þekkt er í dag þá munu ýmis eðlisfræðilögmál fara að setja hraða rökrása ákveðnar skorður. ...
Með áttuhvolfi eða áttureglu (e. octet rule) er átt við að fyrir frumefni innan aðalflokka lotukerfisins, það er að segja flokka 1 - 2 og 13 - 18, gefi átta rafeindir í gildissvigrúmum stöðuga rafeindaskipan. Ástæðan fyrir þessu er sú, að innan þessara flokka efna er verið að fylla svokallað s-svigrúm og þrjú p-sv...
Harði diskurinn og disklingar tilheyra svokölluðu ytra minni í tölvu. Ytra minnið geymir gögn, forrit og næstum allt það sem á að varðveita eftir að slökkt hefur verið á tölvunni.
Á hörðum diskum og disklingum eru segulsvið og járnseglandi efni notuð til að skrá upplýsingar. Járnseglandi efni hafa þann eiginlei...
Tvær meginskilgreiningar eru til á lagahugtakinu, annars vegar lög í þrengri merkingu og hins vegar lög í rýmri merkingu. Þegar talað er um lög í þrengri merkingu er eingöngu átt við lög sem koma frá Alþingi og forseti Íslands og ráðherrar undirrita. Undir þá skilgreiningu falla lög frá Alþingi, stjórnarskráin og ...
Letidýr lifa í Suður-Ameríku og þeir sem nenna geta lesið um um þau í svörum við eftirfarandi spurningum:
Hvar finnast letidýr?Hvaða spendýr fer hægast í heiminum?
Sígild eðlisfræði segir okkur að þyngdarhröðun allra hluta sé sú sama á tilteknum stað, um það bil 9,8 m/s2 við yfirborð jarðar. Þetta þýðir að fallh...
Á vef Hagstofu Íslands er að finna upplýsingar um orkunotkun Íslendinga, skipt eftir uppruna. Til þess að fá raunhæfan samanburð er orkan úr mismunandi orkulindum umreiknuð í eina mælieiningu, eðlisfræðilega orkueiningu sem kallast júl (J=joule).
Samkvæmt vef Hagstofunnar var orkunotkun Íslendinga árið 2008 a...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Í hvernig gildrur voru/eru álar veiddir og hvar er hægt að nálgast teikningar af slíku veiðarfæri?
Í Bændablaðinu árið 2004 er að finna grein eftir Jón Gunnar Schram fiskeldisfræðing um álaveiðar í Skaftárhreppi. Jón Gunnar lýsir þar meðal annars gildrum sem notaðar...
Í seðlasöfnum Orðabókar Háskólans er engin heimild um sambandið að setja miðið hátt. Aftur á móti er vel þekkt að maður setji markið hátt ef hann ætlar sér mikið. Mark merkir þarna ‛markmið, takmark; skotmark’.
Sá sem setur sér metnaðarfullt markmið stefnir hátt. Orðasambandið þekkist frá síðari hluta 20...
Þyngd Vatnajökuls er um 3.000 milljarðar tonna og þessi þungi er slíkur að jarðskorpan hefur gefið eftir og sigið. Ef jökullinn bráðnar og hverfur þá rís landið. Slík svörun jarðskorpunnar er vel þekkt meðal annars út frá rannsóknum á áhrifum ísaldarjökla á landhæð. Fornar strandlínur sem finnast víða á láglend...
Talið er að mesta öryggi smokka sé 98% séu þeir rétt notaðir en líkur á þungun aukast ef þeir eru ekki notaðir samkvæmt leiðbeiningum.
Smokkar, eða einhvers konar slíður til að setja á getnaðarlim og varna þungun, hafa þekkst í margar aldar eins og lesa má um í svari Sóleyjar Bendar við spurningunni Hvenær var ...
Upprunalega spurningin var þríþætt og hljóðaði svona:
Hvers lenskt er fólk frá Litháen, er það litháenskt eða litháískt?
Hvað með fólk frá Filippseyjum, er það filippseyskt eða filippískt?
Hvað kallast japanskt fólk, Japanir eða Japanar?
Í mörgum tilfellum vefst það lítið fyrir fólki hvað kalla skuli íbúa ...
Hér er einnig svarað spurningunni:Er hægt að pissa í geimnum?
Ekki hafa verið farnar mannaðar ferðir til tunglsins síðan snemma á 8. áratug síðustu aldar þannig að enginn hefur þurft að pissa á þeirri leið í langan tíma. Síðast þegar einhver þurfti að pissa á leið til tunglsins var aðstaðan hins vegar mjög bágb...
Já, á þessu tvennu er munur. Hann felst í því hvernig staðið er að ráðningu viðkomandi, hve lengi hún stendur og hve varanleg hún er. Að sama skapi er staða embættismanna sem hafa verið settir í embætti og skipaðir ekki alfarið sú sama.
Almenna reglan er sú að opinberir embættismenn eru skipaðir í embætti. Samk...
Svokölluð jöfnuhneppi eru notuð þegar leysa þarf tvær jöfnur sem hafa tvær óþekktar stærðir. Þá er önnur óþekkta stærðin einangruð í annarri hvorri jöfnunni. Hún er síðan sett inn fyrir óþekktu stærðina í hinni jöfnunni.
Í dæminu sem spyrjandi kemur með er y einangrað í fyrri jöfnunni. Þá þarf einungis að setja...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!